Erling Klingenberg – Lokahóf
Erling Klingenberg
Lokahóf og listamannaspjall
Laugardaginn 27. júní kl. 16:00–19:00
Listamannaspjall kl. 16:00–17:00
Yfirlitssýning Erlings T. V. Klingenberg í Nýlistasafninu og Kling & Bang lýkur um helgina. Af því tilefni efnum við til lokahófs með listamannaspjalli á laugardaginn, 27. júní milli kl. 16:00–19:00 í Marshallhúsinu. Fyrsta klukkutímann munu Erling sjálfur og sýningarstjóri sýningarinnar, Daníel Björnsson, spjalla um sýninguna og taka við spurningum. Léttar veigar verða í boði.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Mynd með frétt: Erling T.V. Klingenberg, Asslick 25 cents, 1999. Ljósmynd: Vigfús Birgisson