Sýning á verkum Hreins Friðfinnssonar í sýningarstjórn Markúsar Þórs Andréssonar og Ragnheiðar Gestsdóttur. Sýningin og dagskrá henni tengd er hluti af Listahátíð í Reykjavík.

Sýningin samanstendur af verkum Hreins auk kvikmyndar um líf hans og list í leikstjórn þeirra Ragnheiðar og Markúsar: æ ofaní æ. Lykilverk af ferli listamannsins og æviatriði eru notuð sem burðarás í taugatrekkjandi frásögn þar sem sannleiksleit vísindanna og sköpunarþrá listarinnar takast á.

Hin margrómaða finnska leikkona, Kati Outinen, er í hlutverki Aiku sem starfar á Rannsóknarstofu tímans. Hún hefur það verkefni að fylgjast með framvindu tilraunar þar sem tvíburabræður voru í æsku fluttir á ólíkar slóðir til þess að mæla framvindu tímans allt eftir nálægð við þyngdarafl Jarðar.


Magnús Logi Kristinsson túlkar þann bróður sem ólst upp hátt uppi í fjöllum Íslands en Hreinn Friðfinnsson sjálfur túlkar þann sem ólst upp niðri við sjávarmál í Amsterdam. Tilraunin fór langt fram úr væntingum enda virðast áratugir skilja bræðurna að. Babb kemur í bátinn þegar Aika ákveður að stefna þeim saman í fyrsta sinn enda er tíminn mikið ólíkindatól. Kvikmyndin verður til sýnis á klukkutíma fresti í sérrými í Nýlistasafninu en í fremra rými verður sýning á verkum Hreins.

Sýningin endurspeglar margslungnar tilraunir Hreins Friðfinnssonar til að höndla hverfulleikann og fanga óendanleikann í tíma og rúmi. Á sýninguna eru valin bæði eldri verk sem ekki hafa komið fyrir sjónir almennings árum saman sem og þekkt verk af ferli listamannsins. Að auki verða til sýnis glæný verk úr smiðju hans sem sniðin eru að hinu sérstaka flísagólfi í Nýlistasafninu við Skúlagötu. Safnið leikur einnig stórt hlutverk í kvikmyndinni enda var hluti hennar tekin í geymslum þess.


Á Listahátíð í maí bætist ný vídd við sýninguna. Listamaðurinn Magnús Logi Kristinsson sem túlkar eina af þremur persónum kvikmyndarinnar flytur gjörning, boðið verður upp á dagskrá með nýlegum videóverkum Hreins og haldið verður sjónþing um verk hans og hina nýju kvikmynd. Að auki verður frumflutt nýtt videóverk eftir Hrein sem varð til á meðan á gerð kvikmyndarinnar stóð og líta má á sem nokkurs konar andsvar við því ferli.

Nánari dagskrá gjörninga, vídeóverka og sjónþings verður auglýst síðar

Hér er hlekkur á stiklu úr kvikmyndinni: https://vimeo.com/33776222

Sýningin æ ofaní æ stendur í Nýlistasafninu 5. apríl – 5. júní.