Nýlistasafnið býður ykkur hjartanlega velkomin á opnun 40 ára afmælissýningar safnsins Djúpþrýstingur, fimmtudaginn 7. júní kl. 18:00.

Nýlistasafnið (Nýló) var stofnað árið 1978 af hópi 27 listamanna og er í dag eitt elsta safn og sýningarrými í Evrópu sem rekið er af listamönnum. Safneignin telur yfir 2.000 verk auk þess að varðveita mikið magn heimilda, m.a. einstakt arkíf um gjörningalist á Íslandi og listamannarekin rými.

Í fjörutíu ára sögu Nýló hafa yfir 2.500 íslenskir og erlendir listamenn komið að sýningum og viðburðum í safninu.

Nýlistasafnið er orðið miðaldra, því ber að fagna!


Listaverkin sem voru valin á sýninguna hafa öll ólíkar en sterkar skírskotanir til samtíma okkar, þá og nú. Hvort sem tengingarnar fara inn á hversdagsleg smáatriði, dægurmenningu, ferðamannaiðnaðinn eða ástand heimsmála.

Verkin gefa gestum því mörg ólík sjónarhorn á atburði líðandi stundar. Þau varpa fram viðvarandi aðstæðum eða andartökum sem líða hægt, eða hratt. Sum listaverkin eru stækkunargler og önnur stjörnukíkir.

Á meðan sýningunni stendur verður fjölbreytt viðburðadagskrá, þ. á m. listamannaspjall, gjörningar og viðburðir.

Sýningin hlaut styrki úr Myndlistarsjóði og Safnasjóð. Hún er auk þess hluti af dagskrá aldarafmælis Fullveldis Íslands og styrkt af afmælisnefnd..


Listamenn sem eiga verk á sýningunni eru:
Atli Heimir Sveinsson, Andreas Brunner
Auður Lóa Guðnadóttir & Starkaður Sigurðarson, Ásgerður Birna Björnsdóttir, Ásta Ólafsdóttir, Björk Guðnadóttir, Daniel Pflumm, Dieter Roth, Douwe Jan Bakker, Edilson, Eirún Sigurðardóttir, Erika MacPherson, Rachel Zolf, Geoffrey Hendricks, Guðrún Einarsdóttir, High Heel Sisters, Hörður Ágústsson, Jóhanna Kristín Yngvadóttir, Jón Gunnar Árnason, Juliane Foronda, Kristín Helga Ríkharðsdóttir, Níels Hafstein, Róska, Rúna Þorkelsdóttir, Saga Sigurðardóttir, Sigurður Guðmundsson, Sólveig Aðalsteinsdóttir og Veigar Ölnir Gunnarsson.

Sýningarskrána má nálgast hér.