Archive for the 'Collection' Category

Lifandi Safneign

nóv 05 2014 Published by under Collection

Safneign Nýlistasafnsins er ekki alvitur en með þeim áhugaverðari öngum íslenskrar listasögu og kjörin vettvangur rannsókna á myndlist og þá sérlega þeirrar sem að gerðist í og í kringum safnið allt frá stofnun þess.

Sýningar á verkum úr safneign Nýló hafa verið fastur liður í sýningarstefnu safnsins frá upphafi en undanfarin áratug hefur viðmiðið verið ein sýning annað hvert ár.

Í Breiðholti hefur Nýlistasafnið eignast sérstakt sýningarrými tileinkað þessari merkilegri safneign. Eitt af hlutverkum þessa nýja rýmis, fyrir utan að vera gluggi að safneign og sögu Nýló, er að bjóða upp á og leita eftir samstarfi við fræðimenn, sýningarstjóra og listamenn.

Margt er enn órannsakað í safneign og heimildasöfnum Nýló og bíður nýja sýningarrýmið upp á marga möguleika og mismunandi nálganir að verkum, sögu og heimildum safnsins.

Eldri sýningar

101 spurning til kvenna 04. – 08. 2015. Í sýningarstjórn Þorgerður Ólafsdóttir. Sjá meira hér.

Prýði 14.05 – 31.08.2015. Í sýningarstjórn Becky Forsythe. Sjá meira hér.

Súrealisminn lifir 01. – 03. 2015 Í sýningarstjórn Eva ísleifsdóttir. Sjá meira hér.

Blind Navigation Í sýningarstjórn Anna Ihle. 09. – 11. 2014. Sjá meira hér.

Reasons to Perform: Always, Always, Always: Look for the Answer. 10.09 – 11.12.2016. Maja Bekan og Gunndís Ýr Finnbogadóttir.

Yfirlestur: Sjóndeildarhringur
myndlist í bókaformi úr safneign Nýlistasafnsins. 22.04. – 02.09.2017. Í sýningarstjórn Heiðar Kári Rannversson.

Yfirlestur: Ævintýri
myndlist í bókaformi úr safneign Nýlistasafnsins. 13.09 – 13.12.2017. Í sýningarstjórn Heiðar Kári Rannversson.

No responses yet

Ný aðföng

jan 06 2014 Published by under Collection

Safneign og heimildasafn Nýlistasafnsins hafa frá upphafi verið byggð á gjöfum og stækka sífellt með framlögum frá listamönnum, félögum og samstarfsfélögum.

Safnið reynir eftir fremsta megni að safna verkum eftir listamenn sem hafa sýnt árlega, gjöfum frá öðrum velunnurum í formi listaverka eða gjörninga, auk skjala og efnis fyrir

heimildasafnið sem spannar 40 ára sögu Nýlistasafnsins.

Stjórn safnsins fer yfir þessar gjafir árlega með markmið safnsins í huga, meðal annars að safna verkum bæði ungra og upprennandi auk þekktra listamanna, bæði íslenskra og erlendra, með sérstakri áherslu á jafnrétti. Ný verk eru skráð í safneignina í lok hvers árs.

Mynd eftir Karlotta Blöndal, Mót I / Print I, 2014, innsetning.

No responses yet

Upplýsingar og markmið

jan 06 2014 Published by under Collection

Nýlistasafnið var stofnað í þeim tilgangi að varðveita íslenska samtímalistasögu, með því að safna verkum eftir höfunda þá nefndrar „nýlistar“ sem opinberar listastofnanir sýndu ekki áhuga. Listaverkaeignin byggir á gjöfum listamanna og aðstandenda þeirra. Fjölmörg verk eftir marga af þekktustu listamönnum Íslands í dag hefðu að líkindum glatast ef Nýlistasafnið hefði ekki komið til sögunnar. Markviss söfnun á upphafsárum safnsins og frameftir hefur skilað sér í safneign sem telur um og yfir 2.000 þúsund verk.

Safneign Nýló geymir því einstæðan hluta íslenskrar listasögu allt frá 1952 og á sér enga líka hérlendis. Meðal merkilegra verka má nefna stærsta safn verka eftir Dieter Roth á Íslandi og þ.m.t. mjög stórt safn bókverka eftir hann, verk ýmissa stofnfélaga SÚM hópsins, verk yfir 60 erlendra listamanna sem hafa komið mjög við sögu myndlistar frá 1960, og síðast en ekki síst verk listamanna sem saman mynda fulltrúaráð Nýlistasafnsins, sem hafa mótað íslenska myndlistarsögu frá 1965.

Þess má einnig geta að flest verk og gögn sem geymd voru í Gallerí SÚM eru nú í vörslu Nýlistasafnsins, auk fjölda annarra gagna um sýningastarfsemi listamanna í gegnum tíðina. Af þessu má ljóst vera að menningarverðmæti safneignar Nýlistasafnins eru umtalsverð og ómetanlegt rannsóknarefni fyrir listfræðinga og án hennar væri listasaga Íslands ófullkomin og skekkt.

Listamenn sem gefið hafa verk í safneign Nýló eru meðal annars Alison Knowles, Arna Óttarsdóttir, Ásta Ólafsdóttir, Ben Vautier, Birgir Andrésson, Bjarni H. Þórarinsson, Carsten Höller, Dieter Roth, Dorothy Iannone, Douwe Jan Bakker, Egill Sæbjörnsson, Finnbogi Pétursson, Franz Graf, Geoffrey Hendricks, Henriette van Egten, Hildigunnur Birgisdóttir, Hildur Hákonardóttir, Hreinn Friðfinnsson, Jan Voss, John Armleder, Joseph Beuys, Kees Visser, Kristján Guðmundsson, Lina Lapelyte, Magnús Pálsson, Margrét Blöndal, Matthew Barney, Meredith Monk, Muriel Magenta, Myriam Bat-Yosef, Níels Hafstein, Ólafur Lárusson, Ragna Hermannsdóttir, Ragnar Kjartansson, Richard Long, Robert Filiou, Róska, Rúna Þorkelsdóttir, Rúrí, Sigurður Guðmundsson, Steina Vasulka, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Gjörningaklúbburinn, Thomas Hirschhorn, Þorvaldur Þorsteinsson og margir fleiri.

Eitt af markmiðum Nýlistasafnsins er a halda utan um sögu Nýlistasafnsins og búa um verkaeign þess og heimildir til framtíðar, að koma upplýsingum á stafrænt form, bregðast við aukinni kröfu fræðimanna og almennings um aðgengi að listfræðilegum heimildum, -gögnum og listaverkum, auk þátttöku í skilvirkri, opinni og aðgengilegri fræðslu- og rannsóknarmiðlun á íslenskri samtímamyndlist í samvinnu við önnur söfn og menntastofnannir.

Nýlistasafnið hefur að markmiði að viðhalda og styrkja hlutverk safnsins bæði hér innanlands sem og í samstarfi við erlendar stofnanir og listsjóði og auðvelda aðgengi erlendra aðila að íslenskri samtímalistasögu. Safnið stefnir á að styrkja hlutverk sitt enn frekar sem söfnunaraðila verka sem aðrar stofnanir hafa síður tök á að safna, s.s. verka úr forgengilegum efnum, gjörningum, myndbandsverkum og bókverkum og miðla þeirri sérstöðu til almennings.

Safneignin er þekkt erlendis og til Nýlistasafnsins leita erlend og innlend söfn, gallerí og stofnanir til að fá lánuð verk úr eigu þess og/eða til fá aðgang að upplýsingum um ákveðin verk og listamenn. Nú þegar aðgengi að heimildum um verkaeignina er komið í endanlegt horf, hefur áhugi og ásókn að sama skapi aukist og vænta má enn meiri aukningar.

Nýlistasafnið hefur getið sér gott orð fyrir að eiga stóran þátt í þróun nútímamyndlistar á Íslandi. Liður í því að gera safneignina aðgengilega er útgáfan Catalogue Raisonné, sem er innanhúsrit og inniheldur upplýsingar um safneignina, sem og þáttaka safnsins í Sarpi, miðlægum gagnagrunni yfir 50 safna á Íslandi. Vefurinn hefur það hlutverk að veita almenningi aðgang að safnkosti aðildarsafnanna og stuðla þannig að þekkingu á íslenskum menningararfi, með það fyrir sjónum að geta í framtíðinni veitt heildaryfirlit yfir safnmuni landsins.

Eyðublað og upplýsingar fyrir beiðni um aðgang að safneign má nálgast hér.

No responses yet

Safneign

jan 05 2014 Published by under Collection

No responses yet

Kíktu í heimsókn

Heimilisfang

  • Nýlistasafnið
  • Marshallhúsið
  • Grandagarður 20
  • 101 Reykjavík
  • Ísland

Opnunartímar

  • mið til sun 12 – 18
  • lokað á mánudögum og þriðjudögum
  • Almenningssamgöngur

    • Strætó: 14
    • Stöð: Grandi

Hafðu samband

  • S: +354 551 4350
  • N: nylo(at)gamla.nylo.is

Panta leiðsögn um yfirstandandi sýningu

Upplýsingar

map